Hæg breytileg átt í dag og víða lítilsháttar skúrir, en yfirleitt þurrt í kvöld. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi.
Norðan 5-10 m/s á morgun. Fer að rigna norðaustan- og austanlands, og bætir í vind þar annað kvöld. Bjart með köflum sunnan heiða, en stöku skúrir. Hiti 7 til 17 stig, mildast syðst.
Spá gerð 26.06.2024 05:01
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
4,3 | 26. jún. 03:03:29 | 32,6 | 20,7 km NNV af Sigöldustöð |
3,2 | 26. jún. 01:47:54 | 64,1 | 257,1 km NA af Kolbeinsey |
3,1 | 25. jún. 17:07:43 | Yfirfarinn | 7,7 km NNV af Bláfjallaskála |
Í gær kl. 17:07 mældist jarðskjálfti af stærð 3,1 í Húsfellsbruna austan Heiðmerkur og Veðurstofu barst tilkynning um að hann hefði fundist í Mosfellsbæ. Nokkrir eftirskjálftar fylgdu en jarðskjálftar eru þekktir á þessu svæði og mældist síðast í janúar á þessu ári skjálfti af svipaðri stærð. Eldgos í Sundhnúksgígaröð. Eldgosinu sem hófst 29. maí síðastliðinn er lokið. Engin virkni hefur verið sjáanleg í gíg síðan á föstudag. Einnig hefur órói á nálægum jarðskjálftamælum dottið niður og er nú sambærilegur því sem mældist áður en gos hófst.
Enn má þó búast við í einhvern tíma að eldra hraun haldi áfram að streyma hægt meðfram Sýlingarfelli norðanverðu og við varnargarð L1 þar sem spýjur hafa runnið yfir.
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 26. jún. 01:18
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Vegna bilunar höfum við þurft að slökkva á þjónustunni sem birtir gögn frá vatnamælistöðvum á kortinu. Í staðinn er hægt að nálgast gögnin í Rauntímavöktunarkerfi.
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 01. jún. 17:58
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | Barst ekki | Barst ekki | Barst ekki |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
|||
Norðanverðir Vestfirðir
|
|||
Tröllaskagi utanverður
|
|||
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
|||
Austfirðir
|
Uppfært 24. júní kl. 14:00
Eldgosinu sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni þann 29. maí er lokið, en engin virkni hefur sést í gígnum frá 22. júní. Gosið stóð yfir í 24 daga og var fimmta eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni síðan í desember 2023. Jafnframt er hraunbreiðan sem myndaðist sú stærsta að rúmmáli og flatarmáli.
Lesa meiraPrófessor Celeste Saulo, nýkjörinn aðalritari Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) kom í heimsókn á Veðurstofuna þann 18. júní og hitti Hildigunni Thorsteinsson, nýráðinn forstjóra. Hún heimsótti m.a. eftirlitssal Veðurstofunnar þar sem Helga Ívarsdóttir, deildarstjóri Veðurspár og náttúruvöktunar, Óli Þór Árnason veðurfræðingur og Salóme Jórunn Bernharðsdóttir náttúruvársérfræðingur sögðu henni frá hinu veigamikla og yfirgripsmikla hlutverki sem vaktin sinnir allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Lesa meiraÞann 19. mars náðist stór áfangi í Veðursetur vestur (UWC-W samstarfinu). Formlegur rekstur á ofurtölvunni er hafinn og veðurstofurnar fjórar á Íslandi, Írlandi og í Danmörku og Hollandi taka í rekstur sameiginlega veðurlíkanareikninga. Formlegur rekstur þýðir að sameiginlegir veðurspárreikningar og rekstur ofurtölvunnar, sem er hýst í kjallaranum á B7, eru vaktaðir allan sólarhringinnn til að tryggja framsleiðsluna og gagnaflæði.
Lesa meiraMaí var tiltölulega hlýr, sérstaklega á norðaustan- og austanverðu landinu. Þar var sólríkt og þurrt. Það var tiltölulega kaldara og úrkomusamara suðvestan- og vestanlands.
Lesa meiraNýr forstjóri Veðurstofu Íslands, Hildigunnur H. H. Thorsteinsson hefur tekið til starfa. Hildigunnur hefur starfað sem tæknistjóri (CTO) hjá jarðhitafyrirtækinu Innargi A/S í Kaupmannahöfn frá árinu 2022. Áður gegndi hún stöðu framkvæmdastýru rannsókna- og nýsköpunar hjá Orkuveitunni í nær áratug. Fyrr á ferlinum starfaði hún í jarðhita bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum, lengst af í bandaríska orkumálaráðuneytinu við stýringu rannsóknarfjármagns. Hildigunnur hefur m.a. setið í stjórnum Orku náttúrunnar, Carbfix, og Jarðhitafélags Bandaríkjanna.
Lesa meira